26.11.2009 | 15:13
The Beatles
Bítlarnir voru áhrifamikil popphljómsveit (deila má samt um það hvort þeir voru beinlínis popphljómsveit þeir skiptust á rokki,folk music,psychadelia ofl.) en var ein sú áhrifamesta í rokk-sögunni og var hún stofnuð 1960. Hljómsveitin er á meðal þeirra vinsælustu sem uppi hafa verið. Meðlimir sveitarinnar koma frá Liverpool í Englandi og eiga rætur sínar að rekja til hljómsveitarinnar The Quarry Men, sem var stofnuð af John Lennon árið 1956. Árið 1957 gekk Paul McCartney til liðs við hana, og árið 1958 George Harrison seinna ganga Stuart Sutcliffe og Pete Best til liðs við hana. Hljómsveitin gekk undir nokkrum nöfnum næstu árin, t.d. Johnny and the Moondogs, The Silver Beetles og vorið 1960 voru hljómsveitarmeðlimir farnir að kalla sig Bítlana (The Beatles).Í upphafi voru The Quarry Men aðeins enn ein skiffle hljómsveitin í Liverpool en hljómsveitin þroskaðist tónlistarlega séð og þeir slógu í gegn snemma á sjöunda áratugnum og þá spiluðu þeir nýstárlega kraftmikla popptónlist en meðal fyrirmynda þeirra var Chuck Berry og á hann að hafa haft mikil áhrif á hljómsveitina. Fyrsta breiðskífa þeirra Please Please Me kom út árið 1963 og tónlist þeirra hélt áfram að þróast alveg allt þar til yfir lauk árið 1970, þegar síðasta plata þeirra kom út, Let it be, en samstarfi þeirra var þá þegar lokið mikil rifrildi búin að vera í bandinu og fleira og upptökurnar á plötunni voru gamlar. Sem dæmi um rifrildin má nefna að Ringo Starr hætti í örlítinn tíma þegar þeir voru nýbúnir að taka upp White Album honum fannst ekki vera nein samvinna í bandinu en hann sneri aftur eftir örstutta fjarveru í bandinu.Alveg frá því fyrsta platan kom út árið 1963 og þar til sú síðasta kom út árið 1970 samanstóð hljómsveitin af fjórum meðlimum, John Lennon, sem spilaði á gítar og söng, Paul McCartney, sem spilaði á bassa og söng, George Harrison, sem spilaði á gítar og söng einstöku sinnum, og svo trommaranum Ringo Starr (Richard Starkey), sem söng líka örfá lög. Langflest lögin voru samin af frægasta lagahöfunda tvíeyki sögunnar Lennon/McCartney. Síðastliðin ár hafa átt sér stað miklar deilur á milli Paul McCartney og Yoko Ono (síðari eiginkona John Lennon) vegna þess að Paul hefur viljað breyta skráningu laga sem hann samdi í McCartney/Lennon.Bítlaæðið byrjaði í kjölfar útgáfu fyrstu plötu þeirra í Bretlandi árið 1963, en snemma árs árið 1964 komu Bítlarnir fram í The Ed Sullivan Show í Bandaríkjunum. Bítlaæðið fór þá í kjölfarið eins og eldur í sinu um heiminn.Bítlarnir gerðu einnig tilraunir með hugvíkkandi lyf (LSD) á 7. áratugnum og gáfu út nokkrar plötur sem unnar voru undir áhrifum þeirra. Ber þar helst að nefna „Magical Mystery Tour“ og „Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band“ en seinni platan er með þeim best seldu plötum Bítlana og höfðu þeir að hluta til áhrif á fyrsta plötu Pink Floyd sem kom út sama ár og nefndist Piper at the gates of dawn þar sem að Bítlarnir voru að taka upp í næsta herbergi við Pink Floyd.Hljómsveitin framleiddi líka í einhverjum mæli kvikmyndir, sú fyrsta var A Hard Day's Night og í kjölfarið fylgdu Help!, Magical Mystery Tour, Heimildarmyndin Let It Be og teiknimyndin Yellow Submarine, sem Bítlarnir komu næstum ekkert nálægt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.